top of page
rakel.jpg

um mig-Rakel Eyfjörð

Ég er jógakennari með margvísleg kennsluréttindi í yogaiðkun sem ég hef nýtt mér til að þróa mitt eigið æfingarkerfi sem er skrásett TMSS YOGA ®/ Stoðkerfisyoga®. Ég er með mitt eigið podcast á Íslensku og Ensku sem kallast HugleiðsluHofið og kenni þessi dásamlegu æfingakerfi á netinu.Heimasíðan bíður upp á margvísleg Námskeið sem bjóða upp á TMSS YOGA nálgun.

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn
  • Instagram

Sagan mín

Áður ern ég hóf mitt yoga ferli og kennslu þá vann ég allt of mikið og var að sinna mörgu í kringum mig, tók sjáldan tíma fyrir mig til að hlúa að eigin heilsu og líkama. Ég reyndi þó stundum og fór í venjulega líkamsrækt eða fór í einherja staka tíma í ræktinni. Ég prófaði líka yoga tíma en ég  fann mig ekki í neinum af þessum tímum. Tímarnir voru oft flestir mjög flóknir, krefjandi og með of mikla snerpu fyrir mig sem gerði það að verkum að stoðkerfisvandi minn jókst frekar en ná einhverjum bata. Einnig fannst mér ég ekki fá dómgreind kennarans í tímum til að fara ekki framúr mér eða gera æfingarnar réttar.

Á vissum tímapunkti í lífi mínu endað ég í líkamlega -& andlegt burnout, ég þurfti að leita mér aðstoðar hjá Virk, fór í sjúkraþjálfun og einbeitti mér í fyrsta skipti að mér. Mér fannst virkilega erfitt að átta mig á því hvert ég var komin líkamlega og hvernig breyti ég því  og hvað tekur við núna ?

Eftir  góðan stuðning Virks og þess programs ákvað að breyta lífi mínu og gera eitthvað alveg nýtt,hugsa um mig og mína heilsun, gera allt sem ég gæti til að ná bata til að lifa betra lífi- því mig langaði ekki að líða svona um líkamann, með stanslausa verki í mjöðmun og baki,að ég gat ekki klætt mig í skó eða reymt skónna án þess að fá verki.Þetta líf sem ég stefndi í var lamandi og ég þurfti meiri breitingar.

 

Ég fór í hefðbundið yoga nám og stoppaði ekki þar, ég ákvað að læra meira og afla mér dýpri þekkingar um mannslíkamann með námi úr ýmsum áttum til að geta hjállpað mér betur. 

Eins og nefndi í upphafi þá hannaði ég þessar jógaseríur fyrir mig sjálfa ,ég fór fljótlega að finna betri líðan í líkamanum, eftir hvert skipti fann ég betri árangur og bata, ég sértaklega fann að þetta var að virka þegar ég var ekki að gera þessar æfingar því þá komi verkirnir aftur fram.

Ég áhvað að setja þetta rólega inn í mína hefðbundu yoga kennslu, nemendum fannst það skrítið í fyrstu en fljótlega fór að bera á mun betri líðan hjá þeim líka eins og mér. Sumir töluðu um að hafa aldrei liðið betur og vissir verkir og hvillar horfið sem höfðu verið að valda ama,svo ég sá að þetta er þá að virka á fleiri en mig .

 

Í dag legg ég mig fram við að veita bestu yoga pplifun fyrir aðra,hvort sem ég kenni hefðbundið jóga eða bara TMSS YOGA sem er mín nálgun af æfingakennsluformi. 

Tímarnir og námskeiðin í TMSS YOGA hafa umbreitt lífi hunduði nemanda og er það vinsælasta programið sem ég kenni.Það hentar fyrir alla og ekki síst þá sem eru taka sín fyrstu skref í þjálfun eða eru með einhverskona ójafnvægi í stoðkerfinu sínu. Það er fullkomnin blanda af anatomiu- og jógafræðum, bandvefslosun og sjálfs- sjúkraþjálfun - og það besta er að hver og einn getur sniðið æfingakerfið að sýnum þörfum í tímum eða með notkun myndbanda sem er í boði.

Námskeiðin mín í TMSS YOGA eru nú loksins fáanleg á netinu og önnur námskeið sem ég hef verið að gera og eru þau með TMSS YOGA æfingaform í sér,því það hefur sínt sig að það skilar mjög góðum árangri.

Svo ef þér finnst þú ekki hafa verið að fá mikið út úr vernjulegum tímum eins og svo margir aðrir ,þá er mín tillaga að prófa nýja nálgun í æfingu . 

Ég þakka þér fyrir áhuga þinn á TMSS YOGA og ég hlakka til að hjálpa þér að komast nær markmiðum þínum.

TMSS YOGA var mótað með hugmynd um betri líkama og með eigin áskorunum. Það felur í sér allt sem mér þykir vænt um í æfingum og mín heitasta ósk er að þegar þú stígur inn í þetta rými þá kveikir það í þér, jafnvel brot af eldmóðinum sem ég hef fyrir þessari iðkun og lífsmáta. Auðveldar leiðir leiða sjaldan til þýðingarmikilla áfangastaða. Aðgerðir hafa meira vald en aðeins íhugun og stöðug iðkun er hornsteinn framförum.

Ég hlakka til að sjá þig í tíma í framtíðinni,

 

Rakel Eyfjörð
Stofnandi YogaHofið ehf /TMSS YOGA®

Yoga

Kennsluréttindi 

YogaVin .Reykjavík

Vinyasa/ 270 

Yoga vin kennara nám undir handleiðslu Ástu.

Útskirfaðaðist og lauk námi 2019 

Scott Morre.USA

Yoga Nidra/ 50

Yoga Nidra nám undir handleiðslu Scott Morre í Bandaríkjunu . Útskrifaðist og lokið námi hausið 2019 

Yoga Body. USA

Flex,fasia & musculs/ 80

CoE í Bretlandi

Law of Attraction / 150

Réttindi til kennsluaðferð og  fræði um aðdrátt jákvæðninnar.

Útskrifaðist 2021

CoE í Bretlandi

Ayurveda / 150

Réttindi til kennslufræði á Ayurveda sem er samsetning næringar og sjúkdómskvilla af þeim fræðum. Útskrifaðist 2021

bottom of page